LogoÞjónusta: support@kortalausnir.com

Vörur

Greiðslukortakerfi Kortalausna býður upp á fjöldann allan af möguleikum þar sem hægt er að bjóða kort af ýmsum gerðum; segulrandar-, strikamerkja- eða önnur auðkenniskort. Kortakerfið hefur samskipti við miðlægt greiðslumiðlunarkerfi Kortalausna sem sér um allar færslur notanda milli kerfa.

Kostur þess að nota greiðslumiðlun Kortalausna er að notandinn þarf aldrei að meðhöndla peninga né heldur er hann í hættu að tapa inneign, glatist t.d. kortið. Allar inneignir, jafnt peningar sem áskriftir eru geymdar á öruggum greiðslumiðli fyrirtæksins og er því hægur leikur að óvirkja glatað kort og virkja nýtt eftir þörfum.

Skólakortið


Skólakort er nýjung í rafrænum greiðsluháttum á Íslandi. Kerfið sem hér um ræðir er sérhannað fyrir mötuneyti í grunnskólum og byggir á greiðslukortum sem nemendur geta notað til að versla vörur innan skólasamfélagsins og gefur foreldrum og forráðamönnum um leið kost á að fylgjast með og stýra neyslu nemandans.

Nemandi fær afhent kort sem sýnir mynd af viðkomandi, upplýsingar s.s. kennitölu og nafn og strikamerki sem auðkennir nemandann. Nemandi framvísar kortinu við hver viðskipti og er hver færsla nákvæmlega skráð svo hægt sé að fylgjast með hvað er keypt og hvenær. Hægt er að setja ýmsar skorður á viðskiptin s.s. hámarksúttekt en þær eru skilgreindar fyrir hvern og einn nemanda hverju sinni.

Kerfið er sérhannað að íslenskum aðstæðum og er sveigjanlegt að þörfum hvers skóla. Valmyndir kerfisins eru þannig gerðar að auðvelt er að breyta þeim fyrir hvert og eitt mötuneyti og nú þegar hafa verið útbúnar valmyndir og tilbúin kerfi fyrir mötuneyti, skrifstofur skóla, félagsmiðstöðvar og sundlaugar.



Innskráning forráðamanna:
Kennitala:

Lykilorð:

NÝTT: Forráðamenn reikninga geta nú tengst eigindasíðum sínum og/eða barna sinna og fylgst með notkun korta í rauntíma.